Fjölbýlishús
Úlfarsbraut 84-94 og 100-110
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 724
12. apríl, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. mars 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. mars 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með sex íbúðum úr krosslímdum timbureiningum, CLT, einangrað að utan, klætt áli og timbri á lóð nr. 84 við Úlfarsbraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. apríl 2019.
Erindinu fylgir bréf hönnuða dags. 22. febrúar 2019 ásamt útreikningi á orkuramma byggingardags. 23. október 2018. Stærð, A-rými: 621,9 ferm., 1.894,7 rúmm. B-rými: 17,8 ferm., 51,6 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. apríl 2019.

113 Reykjavík
Landnúmer: 205750 → skrá.is
Hnitnúmer: 10126166