breyting á deiliskipulagi
Úlfarsárdalur, reitur E
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 724
12. apríl, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa um breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðanna nr. 10, 11 og 12 við Gefjunarbrunn og 10 og 12 við Iðunnarbrunn. Í breytingunni felst lítilsháttar stækkun á byggingarreitum, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 12. febrúar 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 22. febrúar 2019 til og með 22. mars 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Ásdís Lúðvíksdóttir dags. 17. mars 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. mars 2019 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.