breyting á deiliskipulagi
Vatnsveituvegur 50
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 459
13. september, 2013
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 23. ágúst 2013 var lögð fram fyrirspurn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 19. ágúst 2013 varðandi afmörkun lóðar undir dælustöð sína á Vatnsveituvegi 50 (staðfang samþykkt í byggingarnefnd 16. júlí 2013), skv. uppdrætti dags. 4. júlí 2013. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. september 2013.
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. september 2013 eru ekki gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.