breyting á deiliskipulagi
Njálsgötureitur 3
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 459
13. september, 2013
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breyttu deiliskipulagi reits 1.190.3, Njálsgötureits 3, dags. 9. júlí 2013. Skipulagssvæðið afmarkast af Njálsgötu, Barónsstíg, Bergþórugötu og Vitastíg. Tillagan var hagsmunaaðilakynnt, athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. júlí 2013. Tillagan var auglýst frá 19. júlí til og með 30. ágúst 2013. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Íbúasamtök miðborgar dags. 27. ágúst 2013. Einnig lagt fram bréf Hverfisráðs Miðborgar dags. 26. ágúst 2013 ásamt bókun dags. 22. ágúst 2013.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.