breyting á deiliskipulagi
Reitur 1.240.2, Bankareitur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 760
31. janúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi reits 1.240.2, Bankareitur. Í breytingunni felst að minnka afmörkun gildandi deiliskipulags svo að það nái eingöngu utan um lóðina við Laugaveg nr. 120, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 27. nóvember 2019. Tillagan var auglýst frá 16. desember 2019 til og með 29. janúar 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.