framkvæmdaleyfi
Hlemmur og nágrenni
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 760
31. janúar, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að nýju deiliskipulagi fyrir reit 1.240.0, Snorrabraut - Hlemmur. Götureiturinn afmarkast af Hverfisgötu, Hlemm, Laugavegi og Snorrabraut. Vegna tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Hlemm og nágrenni - umferðarskipulag og stækkun, er gerð tillaga að afmörkun nýs deiliskipulagi fyrir Snorrabraut - Hlemm, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 27. nóvember 2019. Tillagan var auglýst frá 16. desember 2019 til og með 29. janúar 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Íbúaráð Miðborgar og Hlíða dags. 29. janúar 2020.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.