breyting á deiliskipulagi
Háskólinn í Reykjavík
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 549
7. ágúst, 2015
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kanon arkitekta ehf. dags. 16. apríl 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskólans í Reykjavík í samræmi við niðurstöðu hugmyndasamkeppni um deiliskipulag Háskólans í Reykjavík, Háskólagarða. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar dags. 16. apríl 2015 og uppdrættir dags. 16. apríl 2015, uppfærðir 14. maí 2015. Auglýsing stóð yfir frá 5. júní 2015 til og með 17. júlí 2015. Tillagan var auglýst frá 5. júní til og með 17. júlí 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Birkir Ingibjartsson dags. 17. júlí 2015. Erindi var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á fundi skipulagsfulltrúa 31. júlí 2015 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.