breyting á deiliskipulagi
Háskólinn í Reykjavík
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 558
16. október, 2015
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kanon arkitekta ehf. dags. 16. apríl 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskólans í Reykjavík í samræmi við niðurstöðu hugmyndasamkeppni um deiliskipulag Háskólans í Reykjavík, Háskólagarða. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar dags. 16. apríl 2015 og uppdrættir dags. 16. apríl 2015, uppfærðir 14. maí 2015. Auglýsing stóð yfir frá 5. júní 2015 til og með 17. júlí 2015. Tillagan var auglýst frá 5. júní til og með 17. júlí 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Birkir Ingibjartsson dags. 17. júlí 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júlí 2015 . Jafnframt er lagt fram bréf skipulagsstofnunar dags. 14. september 2015 og uppf. greinargerð og skilmálar dags. 16. apríl 2015, síðast uppf. 14. október 2015.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs