breyting á deiliskipulagi
Háskólinn í Reykjavík
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 692
27. júlí, 2018
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. júlí 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. júlí 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja óeinangrað hjólaskýli og verða veggir klæddir með hertu samlímdu öryggisgleri norðan við Háskólann í Reykjavík á lóð nr. 1 við Menntaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. júlí 2018.
Stærð: 60,1 ferm., 194,0 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. júlí 2018. Gera þarf breytingu á deiliskipulagi.