breyting á deiliskipulagi
Háskólinn í Reykjavík
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 694
17. ágúst, 2018
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Arkís arkitekta ehf. dags. 8. ágúst 218 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskólans í Reykjavík vegna lóðarinnar nr. 1 við Menntaveg. Í breytingunni felst að komið er fyrir fimm nýjum byggingarreitum fyrir hjólaskýli á lóð, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 16. ágúst 2018.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Þar sem um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.