breyting á deiliskipulagi
Reitur 1.131, Nýlendureitur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 460
20. september, 2013
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits, reitur 1.131 samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagssviðs dags. 1. júlí 2013. Tillagan var hagsmunaaðilakynnt, athugasemdir bárust. Tillagan var auglýst frá 14. ágúst til og með 25. september 2013. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Skúli Magnússon, dags. 28. ágúst 2013, Daði Guðbjörnsson dags. 3. september 2013 og íbúasamtök Vesturbæjar dags. 11. september 2013. Einnig lagt fram bréf Magnúsar Skúlasonar dags. 17. september 2013 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti.
Svar

Samþykkt að framlengja athugasemdafresti til 3. október 2013.