breyting á deiliskipulagi
Gamla höfnin - Vesturbugt, reitir 03 og 04
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 460
20. september, 2013
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breyttu deiliskipulagi Vesturbugtar sem afmarkast af Ánanaustum í vestri og að Slippnum í austri samkvæmt uppdráttum ALARK arkitekta ehf. dags. 8. júlí 2013. Einnig lögð fram greinargerð og skilmálar dags. 8. júlí 2013. Tillagan var hagsmunaaðilakynnt, athugasemdir bárust. Tillagan var auglýst frá 14. ágúst til og með 25. september 2013. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Skúli Magnússon dags. 28. ágúst 2013. Einnig lagt fram bréf Magnúsar Skúlasonar dags. 17. september 2013 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti.
Svar

Samþykkt að framlengja athugasemdafrest til 3. október 2013.

101 Reykjavík
Landnúmer: 218883 → skrá.is
Hnitnúmer: 10123295