Svalir 1. & 2. hæð
Leifsgata 22
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 560
30. október, 2015
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 23. október 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir og gera nýjar dyr út á þær á 1. og 2. hæð á suðvesturhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 22 við Leifsgötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda í Leifsgötu 18-22 dags. í september 2015. Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. október 2015 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. október 2015. Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Leifsgata 18, 20, 24, Eiríksgata 25 og 27. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr, sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2015.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102602 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018375