breyting á deiliskipulagi
Stakkhamrar 7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 398
8. júní, 2012
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. maí 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að stækka bílskúr með því að stækka um tvo metra til suðausturs byggingarreit einbýlishússins á lóðinni nr. 7 við Stakkhamra. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 8. júní 2012. Samþykki nágranna í húsum nr. 3, 5, 9 og 17 við Stakkhamra (á teikn.) fylgir erindinu.
Svar

Neikvætt. Samræmist ekki deiliskipulagi með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 8. júní 2012.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109041 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020196