breyting á deiliskipulagi
Hlemmur, reitur 1.240, Umferðarskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 760
31. janúar, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að nýju deiliskipulagi fyrir reit 1.240.0, Hlemmur. Skipulagið felur í sér endurskipulagningu svæðisins fyrir forgangsakreinar hágæða almenningssamgangna, ný gatnamót við Snorrabraut/Bríetartún, nýtt torg og göngugötur, afmörkun byggingarreits fyrir flutningshúsið Norðurpól og ný létt mannvirki fyrir verslun og þjónustu og ný afmörkun deiliskipulagsreita á svæðinu, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 27. nóvember 2019. Einnig er lögð fram greinargerð Yrki arkitekta ehf. dags. 27. nóvember 2019 og umferðarskýrsla Eflu dags. 29. nóvember 2019. Tillagan var auglýst frá 16. desember 2019 til og með 29. janúar 2020. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir/umsögn: Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur dags. 15. janúar 2020, Jón Rúnar Pálsson dags. 15. janúar 2020, Minjavernd dags. 20. janúar 2020, Ingólfur Kristjánsson dags. 27. janúar 2020, Ólafía Einarsdóttir dags. 27. janúar 2020, Samúel Torfi Pétursson dags. 29. janúar 2020, Íbúaráð Miðborgar og Hlíða dags. 29. janúar 2020, Landssamtök hjólreiðamanna dags. 29. janúar 2020, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu dags. 29. janúar 2020, skrifstofa umhverfisgæða dags. 29. janúar 2020, Bifreiðafélagið Frami dags. 29. janúar 2020, Jón Rúnar Pálsson dags. 29. janúar 2020 og Mörkin lögmannsstofa hf. f.h. Hreyfils dags. 29. janúar 2020.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.