9-11 - Klæðning, endurnýja svalir
Fellsmúli 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 730
31. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. maí 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. maí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að klæða suðurhlið og vesturgafl sléttri álklæðningu ásamt því að endurnýja svalir og svalahandrið á húsi 9-11 á lóð 5-11 við Fellsmúla. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2019.
Erindi fylgir fundargerð Húsfélagsins Fellsmúla 9-11 haldinn þann 12. mars 2019 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 30. apríl 2019. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2019 samþykkt.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103829 → skrá.is
Hnitnúmer: 10026418