Brynjólfsgata 5 - Lyfta - breytingar inni - færa glugga o.fl.
Hjarðarhagi 2-6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 827
2. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. maí 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. maí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja lyftu utan á hús, breyta staðsetningum tveggja glugga á vesturhlið, breyta innra skipulagi jafnframt því að gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á húsi nr. 5 við Brynjólfsgötu á lóð nr. 2-6 við Hjarðarhaga. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2021.
Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á gildandi teikningum dags. 9. júní 1998 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. maí 2021. Stækkun: [00,0] ferm., [00,0] rúmm. Gjald kr.12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2021 samþykkt.