breyting á deiliskipulagi
Breiðagerði 4
Síðast Samþykkt að grenndarkynna á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 827
2. júlí, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. júní 2021 var lögð fram umsókn Vigfúsar Halldórssonar dags. 31. maí 2021 ásamt greinargerð Stefáns Auðuns Stefánssonar dags. 7 janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigagerðisreits vegna lóðarinnar nr. 4 við Breiðagerði. Í breytingunni felst að í stað hangandi stálsvala utan á kvistvegg komi verönd sem hvílir á burðavirkjum þaks yfir stofu, samkvæmt uppdr. Vigfúsar Halldórssonar dags. 27. maí 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Breiðagerði 2 og 6 og Bakkagerði 1, 3 og 5.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr. og 12. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108070 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007746