breyting á deiliskipulagi
Einarsnes 42-42A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 679
4. maí, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. mars 2018 var lögð fram umsókn Þorleifs Eggertssonar f.h. Benedikts Sveinssonar dags. 19. febrúar 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Einarsness vegna lóðar nr. 42-42A við Einarsnes. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar, samkvæmt uppdr. Hughrifs ehf. dags. 19. febrúar 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Einarsnesi 40,42,44, 44a og Bauganesi 1 og 3.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

102 Reykjavík
Landnúmer: 203190 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092196