breyting á deiliskipulagi
Bólstaðarhlíð 47, Háteigsskóli
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 679
4. maí, 2018
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. apríl 2018 var lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 26. apríl 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 47 við Bólstaðarhlíð, Háteigsskóli. Í breytingunni felst að koma fyrir byggingarreit fyrir tvær færanlegar kennslustofur á suðausturhluta lóðarinnar. Auk þess er lóðarmörkum að Stakkahlíð 1 breytt í samræmi við gildandi deiliskipulag á þeirri lóð, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 26. apríl 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.