framkvæmdaleyfi
Gufuneshöfði
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 797
12. nóvember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. október 2020 var lögð fram umsókn Faxaflóahafna sf. dags. 27. október 2020 um framkvæmdaleyfi fyrir gerð á aðkomuslóða að innsiglingarmerkinu við Gufuneshöfða. Einnig er lögð fram fornleifaskráning Borgarsögusafns Reykjavíkur á lóð fyrir innsiglingarmerki Gufuneshöfða dags. árið 2019, umsögn Umhverfisstofnunar dags. 24. september 2019, staðfesting Umhverfisstofnunar dags. 18. mars 2020, deiliskipulagsuppdr. Kanon arkitekta ehf. dags. 17. mars 2020, afnotaleyfi dags. 9. september 2020 og aðaluppdr. Kanon arkitekta dags. 12. ágúst 2020. Jafnframt er lögð fram umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands dags. 6. nóvember 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. nóvember 2020.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. nóvember 2020. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.