breyting á deiliskipulagi
Úlfarsárdalur, reitur E
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 797
12. nóvember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. október 2020 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 28. október 2020 um framkvæmdaleyfi vegna endurheimt votlendis á gömlum túnum í Úlfarsárdal. Einnig er lagðir fram uppdrættir VSÓ ráðgjafar dags. 23. október 2020 og uppdrætti Verkís dags. 24. ágúst 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. nóvember 2020.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. nóvember 2020. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.