breyting á deiliskipulagi
Vesturlandsvegur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 827
2. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Finns Kristinssonar dags. 9. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegar. Í breytingunni felst færsla á skipulagsmörkum á nokkrum stöðum, áætluð akstursundirgöng sunnan Grundarhverfis eru felld niður, almennar stígabreytingar, svæði fyrir hljóðvarnir skilgreindar o.fl., samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 8. mars 2021. Einnig er lögð fram greinargerð, skilmálar og umhverfisskýrsla dags. 7. júní 2018, br. 8. mars 2021, hljóðvistarskýrsla Eflu dags. 10. mars 2021 og hljóðvistarkort dags. í mars 2021. Tillagan var auglýst frá 5. maí 2021 til og með 22. júní 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Theodór Theodórsson dags. 25. maí 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. júní 2021 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 1. júlí 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júlí 2021 samþykkt.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.