Breytingar - 1. og 4.hæð veitingarstaður í fl. III tegund G
Korngarðar 3
Síðast Synjað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 615
6. janúar, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Guðmundar O. Víðissonar, mótt. 7. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka- Klettasvæði vegna lóðanna nr. 3 og 13 við Korngarða. Í breytingunni felst að hámarks nýtingarhlutfall á lóð nr. 3 við Korngarða fyrir millipalla verður 0,34, hámarkshæð húss hækkar frá 26 m. í 35 m. Jafnframt er komið fyrir byggingarreit á lóð nr. 13 við Korngarða þar sem hámarkshæð byggingar verður 18,0 m., samkvæmt uppdr. Dap arkitekta, dags. 20. október 2016. Einnig er lögð fram greinargerð Dap arkitekta ehf., dags. 7. september 2016 og bréf Faxaflóahafna, ódags. Tillagan var auglýst frá 16. nóvember til og með 28. desember 2016. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

104 Reykjavík
Landnúmer: 223775 → skrá.is
Hnitnúmer: 10116000