breyting á deiliskipulagi
Klettagarðar 25
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Arkís arkitekta ehf. dags. 15. desember 2020 ásamt bréfi dags. 15. desember 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 25 við Klettagarða. Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall hækkar úr 0,5 í 0,65 ásamt því að byggingarreitur bráðabirgðar byggingar er felldur niður, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 2. desember 2020. Einnig er lagt fram bréf Módelhúss ehf. til Faxaflóahafna dags. 7. desember 2020 og fundargerð Faxaflóahafna ohf. frá 17. desember 2020 þar sem Faxaflóahafnir samþykkja fyrir sitt leyti ósk um aukið byggingamagn.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.