Djúpgámar
Súðarvogur 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja sex hæða fjölbýlishús með 16 íbúðum, fjórum atvinnurýmum og bílgeymslu fyrir 15 bíla sem verður Kuggavogur 26 á lóð nr. 2 við Súðarvog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. ágúst 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. ágúst 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 24. ágúst 2020. Erindi fylgir einnig greinargerð aðalhönnuðar, brunahönnun frá Brunahönnun slf. , dags. 21. júlí 2020 og hljóðvistarskýrsla frá Hljóðtæknilausnir dags. 25. júní 2020. Stærð mhl. 01, A-rými: 2.385,7 ferm., B-rými: 100,2 ferm. Samtals: 2.485,9 ferm., 8.417,7 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.