(fsp) gististaður í flokki III
Fiskislóð 27
Síðast Synjað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 638
23. júní, 2017
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. júní 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. maí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða skrifstofuhús úr forsmíðuðum einingum, klætt sementsbundnum plötum á staðsteyptum sökkli á lóð nr. 27 við Fiskislóð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. júní 2017.
Erindi fylgja greinargerð um brunavarnir og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 22. maí 2017. Stærð: 2.545,7 ferm., 9.510,7 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Neikvætt. Samræmist ekki deiliskipulagi.