(fsp) óupphitað rými, bílskýli o.fl.
Fjölnisvegur 9
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 638
23. júní, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. júní 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. maí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við bílskúr að lóðarmörkum til austurs ásamt skyggni með þaksvölum framan við bílskúr að lóðarmörkum til vesturs og skyggni á 2. hæð á suðvestur gafli í húsi á lóð nr. 9 við Fjölnisveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. júní 2017.
Stækkun: A-rými x ferm., x rúmm. B-rými x ferm., x rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. júní 2017, samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102663 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009927