(fsp) hringstigi
Þórsgata 27
Síðast Synjað á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. nóvember 2020 var lögð fram umsókn Páls V. Bjarnasonar dags. 20. nóvember 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Lokastígsreits 3 vegna lóðarinnar nr. 27 við Þórsgötu. Í breytingunni felst að hækka ris hússins um 1,49 m. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall úr 0,8 í 1,0, samkvæmt uppdr. Páls V. Bjarnasonar dags. 18. desember 2020. Einnig er lagt fram skuggavarp dags. 18. desember 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Þórsgötu 24-28, 25 og 29 og Lokastíg 24, 24a, 26, 28 og 28a.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101782 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016208