breyting á deiliskipulagi
Vesturgata 61
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 803
8. janúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. desember 2020 var lögð fram fyrirspurn Gunnlaugs Johnson dags. 29. október 2020 um að skipta lóðinni nr. 61 við Vesturgötu í tvo hluta þannig að úr verði tvær nánast jafn stórar lóðir og byggja hús álíka stórt og steinbærinn við Seljaveg, samkvæmt fyrirspurnartillögu Gunnlaugs Ó. Johnson ark. ódags. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 29. október 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. janúar 2021.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað í samræmi við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. janúar 2021.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100226 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013712