breyting á deiliskipulagi
Elliðabraut 8-10, 12 og 14
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 734
28. júní, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Hermanns Georgs Gunnlaugssonar dags. 21. febrúar 2019 ásamt greinargerð dags. 28. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna lóðanna nr. 4-22 við Elliðabraut. Í breytingunni felst að stækka afmörkun deiliskipulags að Breiðholtsbrautinni að núverandi göngustíg frá undirgöngum úr Víðidal að Björnslundi og að hringtorgi við Þingtorg, gera hljóðmön og göngu- og hjólastíg milli Breiðholtsbrautar og Elliðabrautar 4-22, fjölga íbúðum við Elliðabraut 12-22, samkvæmt uppdr. og greinargerð Teiknistofunnar Storð ehf. dags. 14.febrúar 2019, síðast breytt 12. apríl 2019. Einnig er lögð fram hljóðskýrsla verkfræðistofunnar Eflu dags. 16. apríl 2019. Tillagan var auglýst frá 13. maí 2019 til og með 24. júní 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar