Ný forstofa
Stýrimannastígur 9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. desember 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja nýja forstofu á undirstöðum núverandi trappna við aðalinngang auk þess að gera þar nýjar tröppur, breyta kjallaratröppum og setja þakglugga yfir stiga á 2. hæð húss nr. 9 við Stýrimannastíg, samkvæmt uppdr. ARGOS ehf. dags. 10. desember 2019. Erindi var grenndarkynnt frá 20. janúar 2020 til og með 17. febrúar 2020. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagður fram tölvupóstur Jóhönnu Kristjánsdóttur dags. 26. janúar 2020 þar sem ekki er gerð athugasemd við breytingarnar.
Erindi fylgir hæðablað dags. maí 2008, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. nóvember 2019 og umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 7. nóvember 2019. Stækkun: x.xx ferm., x.xx rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 759/2019 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100476 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021914