Þaksvalir og kvistur
Tjarnargata 10C
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 762
21. febrúar, 2020
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvist og koma fyrir þaksvölum á norðvesturhlið húss á lóð nr. 10C við Tjarnargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. febrúar 2020.
Stækkun : XX ferm., XX rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. febrúar 2020