Breyting á aðgengi
Fríkirkjuvegur 11
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 601
16. september, 2016
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 9. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. ágúst 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN049604 sem felst í breytingu á aðgengi að kjallara við sunnanvert húsið á lóð nr. 11 við Fríkirkjuveg. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Sjá ennfremur erindi BN050726. Bréf hönnuða um ábyrgðasvið dags. 05.08.2016 fylgir erindi. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Laufásvegi 20, 22, 24 og 26, Skothúsvegi 15 og Fríkirkjuvegi 9.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101973 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010773