19 - Breytingar - stækkun
Haðaland 17-23
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 641
14. júlí, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Yngva Halldórssonar, mótt. 28. júní 2017, um stækkun húsins nr. 19 á lóð nr. 17-23 við Haðaland sem felst í að byggja viðbyggingu á vesturhlið byggingarinnar, sólstofu sem gengur út af núverandi stofu. Sólstofan yrði með einhalla þaki. Einnig er sótt um að byggja kjallaraherbergi með þakglugga undir sólstofunni sem teygir sig lengra í norðurátt. Sá hluti yrði allur neðanjarðar, samkvæmt uppdr. Hugsjón, dags. 26. júní 2017. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júlí 2017.
Svar

Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. júlí 2017.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108811 → skrá.is
Hnitnúmer: 10012138