Kvistir, þakgluggar, endurnýja þak o.fl.
Laufásvegur 63
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 575
26. febrúar, 2016
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. febrúar 2016 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja og hækka þak, stækka kvist á norðausturhlið, byggja kvist á suðvesturhlið og innrétta herbergi og bað í risi einbýlishúss á lóð nr. 63 við Laufásveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015.
Einnig bréf umsækjanda dags. 20. september 2015 og minnisblað um brunavarnir dags. 26. janúar 2016. Stækkun: xx rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Laufásvegi 60, 61, 62, 64, 64A og 65 og Bergstaðastræti 66, 68 og 70.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102699 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016566