(fsp) fara út fyrir byggingarreit
Fossaleynir 19-23
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 625
17. mars, 2017
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Gunnlaugs Johnson, mótt. 27. febrúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 19-23 við Fossaleynir sem felst í að breyta byggingarreit svo að horn áfanga 3 nær út fyrir núverandi byggingarreit, fella út kvöð um lága millibyggingu milli áfanga 2 og 3 og að í staðinn komi skotrenna milli húseignina, úthorn nýbyggingar verði inndreginn til að minnka sjónræn áhrif og fella niður kvöð um hringakstur kringum byggingarreitinn, samkvæmt uppdr. Gunnlaugs Johnsson, dags. 16. febrúar 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. mars 2017..
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 17. mars 2017.