breyting á deiliskipulagi
Mógilsá og Kollafjörður
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 587
27. maí, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. maí 2016 var lögð fram umsókn Skógræktarfélags Reykjavíkur, mótt. 19. apríl 2016, um framkvæmdaleyfi vegna lagfæringar á Esjustíg í landi Mógilsár á Kjalarnesi. Einnig er lögð fram verkefnislýsing Skógræktarfélags Reykjavíkur, ódags. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. maí 2016.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags.26. maí 2016 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 5.2 gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014.