Atvinnuhúsnæði
Varmadalur 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 601
16. september, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 9. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. ágúst 2016 þar sem spurt er hvort stækka megi verkfæraskemmu 125767 um 33 ferm. bíslag til vesturs, opið að sunnan og klætt með bárujárni og báruplastgluggum á lóð Varmadals á Kjalarnesi. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. september 2016.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16, september 2016, samþykkt.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.