breyting á deiliskipulagi
Kjalarnes, Saltvík
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 765
13. mars, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Atla Jóhanns Guðbjörnssonar dags. 10. september 2019 ásamt bréfi dags. 10. september 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að bæta við nýjum byggingarreit (reitur F) á landið fyrir starfsmannahús og auka nýtingarhlutfall, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf. dags. 10. september 2019 br. 12. mars 2020. Tillagan var auglýst frá 20. janúar 2020 til og með 2. mars 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Veitur dags. 2. mars 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. mars 2020 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt með vísan til a. liðar 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 1020/2019.