breyting á deiliskipulagi
Geirsgata 9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 820
14. maí, 2021
Annað
‹ 475705
476313
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. mars 2021 var lögð fram fyrirspurn ASK Arkitekta ehf. dags. 17. mars 2021 ásamt greinargerð dags. 17. mars 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Slippa- og Ellingsenreits, með síðari breytingum, vegna lóðarinnar nr. 9 við Geirsgötu sem felst í stækkun skipulagssvæðis Vesturbugtar þannig að Geirsgata 9 verði hluti af reit 8 á skipulagssvæðinu ásamt því að gera nýjan byggingarreit í anda verbúðanna að Geirsgötu 3-7, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 17. mars 2021. Einnig er lögð fram fundargerð stjórnar Faxaflóahafna sf. frá 19. febrúar 2021 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna sf. dags. 16. febrúar 2021. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2021.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2021, samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100088 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023707