Fjölbýlishús með 8 íbúðum
Hagasel 23
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1087
20. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús sem fellur undir búsetuúrræði Velferðarsviðs og Félagsbústaða, á tveimur hæðum með átta íbúðum, úr krosslímdum timbureiningum, einangrað og klætt með viðarklæðningu að utan, á lóð nr. 23 við Hagasel.
Erindi fylgir mæliblað nr. 4.937.7 dags. 11. júní 1993, hæðablað dags. október 1987, Minnisblað 01 frá Víðsjá verkfræðistofu dags. 18. desember 2019, Hljóðvistargreinagerð II frá Eflu dags. 26. ágúst 2020, samantekt á brunavörnum hússins frá Mannviti dags. 24. janúar 2020, greinagerð hönnuðar um algilda hönnun dags. 20. september 2020, bréf hönnuðar dags. 29. september 2020 og varmatapsútreikningur dags. 20. janúar 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. október 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. október 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2020.
Stærðir:
1. hæð: 287,1 ferm., 817,7 rúmm.
2. hæð: 264,0 ferm., 872,5 rúmm.
Samtals A rými: 551,1 ferm., 1.747,8 rúmm.
B-rými: 48,5 ferm., 114,6 rúmm.
Gjald. kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.