Stoðveggur á lóð, yfirbyggt rými og stækkun svala.
Hnjúkasel 15
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Málsaðilar
Heiðrún Rósa Sverrisdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1087
20. október, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að setja upp stoðvegg inná lóð, byggja yfir gryfju við stoðvegg þannig að undir verði yfirbyggt rými og ofan á verði stækkun við núverandi svalir á húsi á lóð nr. 15 við Hnjúkasel.
Erindi fylgir samþykki eiganda Hálsasels 56 á teikningu dags. 6. júlí 2020 og nýtt umsóknarblað með breyttum texta mótt. 24. ágúst 2020.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. september 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. september 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2020.
Stækkun:
B-rými 26,5 ferm., 66,3 rúmm.
C-rými 37,4 ferm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

109 Reykjavík
Landnúmer: 113209 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018906