Tunguvegur 12, bílskúr á lóðÞorgrímur Þráinsson, Tunguvegur 12, 108 Reykjavík
Tunguvegur 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 88
11. nóvember, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteyptan bílskúr, mhl.02, á lóð nr. 12 við Tunguveg, samkvæmt uppdr. Önnu Leoniak dags. 26. júlí 2020 og 26. ágúst 2020. Erindi var grenndarkynnt frá 21. september 2020 til og með 19. október 2020. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: Jón Viðar Gunnarsson og Ellý Hauksdóttir Hauth dags. 25. september 2020, Björg Kristín Sigþórsdóttir 19. október 2020 og Helgi Kristján Pálsson dags. 19. október 2020.  Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 15. ágúst 2020, mæliblað 1.822.3 síðast útgefið 9. maí 2011 og hæðablað útgefið í ágúst 2001. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. október 2020.
Svar

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2020.Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108326 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024457