Breyta efri hæð og byggja sólstofu
Melgerði 17 01.81.531.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Svanhvít MacKenzie Aðalsteinsd.
Skipulags- og samgönguráð nr. 44
21. ágúst, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. maí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja sólstofu við austurhlið og til að rífa kvisti og byggja nýja, koma fyrir þakgluggum, gera yfirbyggðar svalir á vesturhlið og breyta innra skipulagi efri hæðar ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðum bílskúr á lóð einbýlishúss á lóð nr. 17 við Melgerði, samkvæmt uppdr. Arkiteo ehf. dags. 23. apríl 2019. Erindi var grenndarkynnt frá 12. júní 2019 til og með 10. júlí 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Sigurður Guðjónsson og Edda Thors dags. 8. júlí 2019. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. ágúst 2019. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júlí 2019 samþykkt. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
Gestir
Ingvar Jón Bates Gíslason verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 
108 Reykjavík
Landnúmer: 108008 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021661