Sótt er um leyfi til að byggja sólstofu við austurhlið og til að rífa kvisti og byggja nýja, koma fyrir þakgluggum, gera yfirbyggðar svalir á vesturhlið og breyta innra skipulagi efri hæðar ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðum bílskúr á lóð einbýlishúss á lóð nr. 17 við Melgerði. Stækkun: 67 ferm., 184,5 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað til uppdrátta A-01, 02 dags. 24. apríl 2019.