Rishæð - fjölga eignum
Laugateigur 21 01.36.411.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Freyr Arnarson
Byggingarfulltrúi nr. 1022
28. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að hækka þak og byggja kvisti og innrétta risíbúð í húsi á lóð nr. 21 við Laugateig.
Stækkun: 50,5 ferm., 152,9 rúmm.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 12. mars 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundur skipulagsfulltrúa frá 17. maí 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. maí 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104619 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017465