Innra skipulagi breytt
Laufásvegur 18 01.18.340.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1022
28. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að lækka gólf í kjallara bakhúss, grafa frá, gera nýjan stiga og glugga úr kjallara og til að breyta innra skipulagi á báðum hæðum bakhúss og í kjallara framhúss, innrétta tvær íbúðir og vinnustofu sem verða áfram ein eign, í fjölbýlishúsi á lóð nr. 18 við Laufásveg.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt og húsaskoðun byggingarfulltrúa dags. 16. apríl 2019.
Stækkun: 23,2 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Þinglýsa skal yfirlýsingu um að rými -101, 0001, 0002, 0003 verði áfram ein eign fyrir útgáfu byggingarleyfis.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101965 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015895