Rishæð - stækkun og kvistir.
Garðastræti 14 01.13.630.8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Guðrún Jónasdóttir
Skipulags- og samgönguráð nr. 46
4. september, 2019
Annað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja rishæð með kvistum á þrjá vegu og gera þar sjálfstæða íbúð í húsi á lóð nr. 14 við Garðastræti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. apríl 2019. Erindi var grenndarkynnt frá 16. maí 2019 til og með 13. júní 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Gestur Ólafsson dags. 11. júní 2019 og Lilja Valdimarsdóttir og Pálmi Guðmundsson dags. 13. júní 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. júní 2019 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2019. Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2019. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
Gestir
Margrét Þormar verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
101 Reykjavík
Landnúmer: 100566 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010157