Bílskúr austan við hús
Langagerði 14 01.83.200.7
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Málsaðilar
Jón Aðalsteinn Sveinsson
Guðrún Elísabet Ómarsdóttir
Skipulags- og samgönguráð nr. 46
4. september, 2019
Annað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr, einangraðan að innan með timburþaki á lóð nr. 14 við Langagerði. Erindi var grenndarkynnt frá 15. apríl til og með 13. maí 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir. Guðný J. Valberg og Ólafur Eggertsson, dags. 2. maí 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. maí 2019 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2019 og lagfærðum uppdr. verkfræðistofunnar Þráins og Benedikts dags. 21. febrúar 2019 og síðast breytt 19. ágúst 2019. Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2019. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
Gestir
Sólveig Sigurðardóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
108 Reykjavík
Landnúmer: 108534 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014943